Jæja... þá er ég stödd í vinnunni hjá Klafa ...... 2 vaktin u.þ.b. hálfnuð....... Núna er lítið að gera en á morgun koma 4 stór skip þannig að þá verður fjör

ÉG held að það sé alveg spurning um að skella inn myndum af mér hér við fyrsta tækifæri í gallanum..... ég verð mjög hissa ef mér verður ekki boðinn módelsamningur þegar ég klæðist vinnugallanum

En í dag fékk ég fötin. Grænan stuttermabol og græna peysu.. hvort tveggja merkt klafa, nafninu mínu og port security,.... appelsínugula úlpu til að tóna við appelsínugula hjálminn með samskonar merkingum...... ekki má svo gleyma bláa þunna mittisjakkanum.... skónum með stáltáni.... vestinu úr neongula litnum til að vera í í gælslunni.... hlífðargleraugunum og sokkunum sem eru u.þ.b. 4 nr. of stórir......... Ég held að það sé hreinlega engin leið að toppa þetta..... eða jú.... buxurnar sem eru bláar að lit..... með auðvitað klafa merkinu á rassinum.... hvar annarsstaðar

Að öðru leyti líst mér bara ágætlega á þetta allt saman..... þangað til annað kemur í ljós
2 hluti af 3 í vinnuvélanámskeiðinu er svo á laugardag og sunnudag frá 7:30-19:00 báða dagana....... jibbý.... frábært.... engin von um að sofa út...... og svo fer ég á hafnargæslunámskeiðið á mánudaginn.... þannig að þetta fer allt að koma...... sem er eins gott því ég gæti alveg þurft að fara að gera eitthvað af viti hérna fljótlega...... t.d. keyra vinnuvélar og annað sem verðu án efa bráðskemmtilegt.... allavega fyrir hina að horfa á

Fleira er það ekki í bili.... kem með fleiri fréttir síðar ....